Vorhátíð Grunnskóla Húnaþings vestra

Vorhátíð Grunnskóla Húnaþings vestra er í dag, föstudaginn 18. maí, og við tilefnið verður mikið um að vera hjá nemendum skólans. Foreldrar, afar og ömmur, frændur og frænkur sérstaklega hvött til að koma og taka þátt í deginum, segir á Norðanáttinni.

Aðgangur á hátíðina er ókeypis og er dagskrá sem hér segir:

13:00-14:00
Hátíðin hefst í Félagsheimilinu Hvammstanga á því að nemendur 5. og 6. bekkjar syngja nokkur vel valin lög. Þar á eftir frumsýna svo nemendur í hljómlistarvali söngleikinn Allt getur gerst og eflaust gerist það víst. Söngleikurinn, sem fjallar um líf unglinga í litlu þorpi úti á landi og hvernig líf þeirra breytist þegar þau finna flösku niður í fjöru, hefur að geyma fræga íslenska persónu. Söngleikurinn er saminn og fluttur af nemendum sjálfum. Um leikstjórn sér Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir en tónlistarstjórn er í höndum Páls Björnssonar.

14:00-14:30
Að lokinni dagskrá í Félagsheimilinu Hvammstanga hefst farartækjakeppni 7. bekkjar í íþróttamiðstöðinni.

14:30-17:00
Kaffihús 9. bekkinga opnar kl. 14:30 í húsnæði skólans á Hvammstanga. Kaffihúsið er upphaf fjáröflunar fyrir útskriftarferð 10. bekkjar að ári svo allir eru hvattir til að koma við og fá sér kaffi og meðlæti. Kaffið kostar 500 kr. og athugið að ekki er tekið á móti kortum. Foreldrar eru minntir á að ef nemendur hyggjast fá sér hressingu á kaffihúsinu þarf að greiða fyrir það 500 kr.
Margt verður svo á boðstólnum í og við skólann: hoppukastali, draugahús, andlitsmálum, leikir, sýningar og fleira.

Að vorhátíð og frágangi lokinni aka skólabílar heim kl. 17:15.

Heimild: Norðanátt.is

 

Fleiri fréttir