Vormót Júdódeildar Tindastóls í dag

Vormót JT verður haldið í dag, laugardaginn 30. maí, í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Þátttakendur koma frá JR í Reykjavík, Pardus á Blönduósi, Draupni á Akureyri og Tindastóli.

Haldin var sameiginleg júdóæfing frá 10:00 – 12:00 og mótið hefst svo klukkan 13:00 og því lýkur um 15:00. Það eru allir velkomnir að fylgjast með æfingu og keppni.

Fleiri fréttir