Vortónleikar Lóuþræla, með léttu ívafi
Karlakórinn Lóuþrælar fagna sumri með söng og leik í Félagsheimili Hvammstanga, síðasta vetrardag, miðvikudaginn 20. apríl kl. 21:00 Kórstjóri er Guðmundur St. Sigurðsson og undirleikari Elinborg Sigurgeirsdóttir. Einsöngvari er Guðmundur Þorbergsson.
Hljómsveit kórfélaga leikur undir söng og fyrir gesti eftir tónleika. Kaffiveitingar að hætti Lóuþræla.
Aðgangseyrir er kr. 2.500. Frítt fyrir 14 ára og yngri.
Posi ekki á staðnum.
Verið öll velkomin til að gleðjast með kátum kórfélögum.
Stjórnin.