Vortónleikar Rökkurkórsins á sunnudaginn
Rökkurkórinn í Skagafirði heldur vortónleika sína í Menningrhúsinu Miðgarði í Varmahlíð sunnudaginn 27. mars nk. kl. 20:30. Stjórnandi kórsins er Sveinn Sigurbjörnsson og undirleikari er Thomas Higgersson.
Kórinn gaf út geisladisk í vetrarbyrjun og ætla má að einhver lög af honum fái að hljóma í Miðgarði á sunnudaginn. Einsöngvarar að þessu sinn verða þær Valborg Hjálmarsdóttir og Íris Baldvinsdóttir.
Aðgangseyrir er kr. 2500 og er kaffihlaðborð innifalið í verðinu. Frítt er fyrir 14 ára og yngri.