Vörumerki valið fyrir Gand
feykir.is
Skagafjörður
22.02.2014
kl. 17.09
Loðdýrabændur að Syðra-Skörðugili í Skagafirði hafa undanfarin misseri unnið að vöruþróun sem gengur út á að vinna græðandi smyrsl úr minkafitu. Nú í ársbyrjun fóru aðstandendur verkefnisins þess á leit við Myndlistaskólann á Akureyri að nemendur Listhönnunardeildar skólans hönnuðu vörumerki fyrir afurðirnar.
Í framhaldi var efnt til samkeppni nemenda á fyrsta-, öðru- og þriðja ári deildarinnar. Merki Ingibjargar Berglindar Guðmundsdóttur var valið sem framtíðarauðkenni Gands. Afhending verðlauna fór fram í Myndlistaskólanum á Akureyri í gær, föstudag, ásamt því að eigendur Gands tóku formlega við merkinu. Vikudagur segir frá þessu.