VSOT tónleikar á föstudagskvöldið
Hinir árlegu VSOT tónleikar verða haldnir í Bifröst á Sauðárkróki föstudagskvöldið 28. júní og verða með hefðbundnu sniði að mestu leyti. Stórtíðindin eru þó þau að þetta árið eru eingöngu Skagfirðingar í austfirsku hljómsveitinni Dætur Satans. Bassaleikari sveitarinnar, hljómborðsleikari og skáld áttu ekki heimangengt og eru því Margeir Friðriksson, Rögnvaldur Valbergsson, Sigfús Benediktsson og Ægir Ásbjörnsson sessionspilarar þetta árið en fyrir eru þeir Magnús Helgason Egilsstöðum, Gunnar Ingi Árnason Heimshornaflakkari og Þórólfur Stefánsson sem kemur frá Svíþjóð.
Hljómsveitin Villtir Svanir og Tófa, sem tónleikarnir eru kenndir við, fær á hverju ári gestasöngvara og þetta árið eru það Sveinn Rúnar Gunnarsson, Ingunn Kristjánsdóttir, Sigurlaug Vordís og Gísli Óla sem stíga á stokk. Fastir meðlimir sveitarinnar eru: Margeir Friðriksson, Rögnvaldur Valbergsson, Sigfús Benediktsson, Ægir Ásbjörnsson, Magnús Helgason, Gunnar Ingi Árnason og Þórólfur Stefánsson.
Ungbandið þetta árið er hljómsveitin Steinsmiðjan en drengirnir í þeirri sveit spila framsækið frumsamið rokk.
Eftirfarandi einstaklingar og hljómsveitir munu stíga á stokk:
- Gillon
- Joe Dubius
- Steinsmiðjan
- Hreindís Ylva og Drengirnir
- Fúsi og Vordísin
- Tríó Pilli Prakkó
- Contalgen Funeral
- Röggi og Hammondinn (Reymond)
- Dætur Satans
- Sæskrímsli
- Villtir Svanir og Tófa