Yfirmatreiðslumeistari Kolabrautarinnar ánægður með Hörpuna

Kolabrautin heitir nýi veitingastaðurinn í tónlistarhúsinu Hörpunni í höfuðstað okkar Íslendinga og þar er yfirmatreiðslumeistarinn Skagfirðingurinn og afmælisbarn dagsins Þráinn Freyr Vigfússon landsliðskokkur. Heldur upp á daginn á landsliðsæfingu.

Feykir.is hafði samband við Þráinn í tilefni dagsins og byrjaði á að spyrja hvernig honum litist á Hörpuna og nýja veitingastaðinn. -Bara mjög vel, húsið er að allt að skríða saman í rólegheitunum og Kolabrautin er bara mjög flottur veitingastaður fyrir alla landsmenn. Það er búið að ganga mikið á við að koma honum á laggirnar. Daginn fyrir opnun lenti allt eldhússtaffið á sjúkrahúsi með eitrun, en þetta hefur gengið vonum framar. Maturinn er einfaldur þar sem ekki er verið að flækja hlutina heldur einbeitum við okkur að færi hlutum og gerum þá vel. Notum íslenskt hráefni með áhrifum frá miðjarðarhafinu.

Mikið að gera? -Já, það er búið að vera nóg að gera frá opnun staðarins og er bara að aukast. Eldhúsið er inn í sal á Kolabrautinni þannig að gesturinn er bara alveg ofan í okkur þannig að það sést allt sem verið er að elda. Maturinn er borinn fram á íslenskri leirhönnun sem var gerð í samstarfi með okkur, Birkitrjám,  og svo erum við að gera desserta á borðið hjá gestinum inn í sal.

Hvað gerir þú á afmælisdaginn þinn? Fór á landliðsæfingu svo verður eitthvað skemmtilegt gert í kvöld.

Þráinn hvetur alla til að kíkja á Hörpuna og koma við á 4. hæðinni þar sem er líf og fjör.

Fleiri fréttir