Zumba á Hvammstanga
Dagana 30. maí til 1. júní verður hægt að mæta í Zumba-tíma á Hvammstanga þar sem Kara Arngrímsdóttir mun kenna tímana sem verða þrír talsins. Kara fékk alþjóðleg kennsluréttindi í Zumba í janúar s.l. og hefur kennt Zumba frá þeim tíma. Sjálf segist hún svo hafa kennt dans lengur en elstu menn muna, en margir kannast eflaust við hana í tengslum við Dansskóla Jóns Péturs og Köru.
Að sögn Köru er Zumba mikil og skemmtileg hreyfing fyrir alla, en tímarnir eru jafnt fyrir karla og konur frá 16 ára aldri. Mikil brennsla er í Zumba en hver og einn gerir eins og hann getur. Zumba byggist upp á dansi út í eitt við skemmtilega tónlist. Maður upplifir sig ekki í líkamsrækt heldur er bara gaman. Það er því mikið stuð og tímarnir eru að Köru sögn ótrúlega fljótir að líða.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá sýnishorn af Zúmbatíma sem fannst á You Tube.
http://www.youtube.com/watch?v=tm7DyRjtWRc
/Norðanátt