Húnvetningar prjónuðu yfir Magnamenn
Það var spilað í 2. deildinni á Blönduósi á föstudagskvöldið en þá tók lið Kormáks/Hvatar á móti Grenvíkingum. Það hefur verið óvanalegt óstuð á Magnamönnum þetta sumarið og voru þeir á botni deildarinnar fyrir leik og engin breyting varð þar á því Húnvetningar hreinlega prjónuðu yfir gestina sem máttu þola 7-1 tap. Lið Húnvetninga er nú í fjórða sæti 2. deildar og til alls líklegt í sumar.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Unglingalandsmóti lýkur í kvöld með flugeldasýningu
Það er runninn upp lokadagur Unglingalandsmótsins á Sauðárkróki og ekki væsir um keppendur og gesti veðrið hefur heldur betur verið með þeim í liði, aðeins á föstudaginn sem dimmt var yfir og þokuloft en annars bara glampandi sól og nauðsynlegur norðanandvari til kælingur. Að sögn Pálínu Óskar í móttstjórn hefur mótshaldið gengið ljómandi vel og skráningar í allar greinar skilað sér vel. Hún segir gleðilegt að þátttaka sé góð í öllum greinum og sömuleiðis í þeirri afþreyingu sem boðið er upp á.Meira -
Ungmennafélagið Fram á Skagaströnd fær styrk til strandhreinsunar
Ungmennafélagið Fram á Skagaströnd hefur fengið 733 þúsund króna styrk frá Umhverfis- og orkustofnun til strandhreinsunar. Húnahornið segir frá því að stofnunin úthlutaði styrkjum nýverið til 18 verkefna en umsóknir voru 24 talsins. Heildarfjárhæð styrkjanna er tæplega 30 milljónir króna og eru þeir veittir á grundvelli aðgerðar 17 í aðgerðaráætlun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins í plastmálefnum Úr viðjum plastsins. Sjá má alla styrkthafa hér.Meira -
Freistað með okkar eigin peningum | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 02.08.2026 kl. 10.39 oli@feykir.isVið fáum gjarnan að heyra það úr ranni Evrópusambandssinna að með því að ganga í Evrópusambandið gætum við fengið alls kyns styrki frá sambandinu. Lofað er gulli og grænum skógum í þeim efnum. Ekkert er hins vegar minnzt á það að komi til inngöngu Íslands í Evrópusambandið myndum við greiða meira í sjóði sambandsins en fengist til baka í hvers kyns styrki vegna hárra þjóðartekna hér á landi miðað við ríki þess. Munar þar mörgum milljörðum króna árlega. Með öðrum orðum er verið að freista okkar með okkar eigin peningum. Væri ekki nær að nota þá fjármuni hér innanlands?Meira -
Fjör fram á síðustu stundu
Mikið líf og fjör hefur verið á Sauðárkróki undanfarna daga og gleðin heldur áfram í dag, en nú er komið að lokadegi Unglingalandsmótsins. Helgin hefur heppnast með glæsibrag og eru bæði gestir og heimafólk í skýjunum með mótið. Nú er bara að halda jákvæðninni og stuðinu áfram fram á síðustu stundu.Meira -
"Það er aldrei gott að airball-a" segir Stefán Þór íþróttagarpur
Stefán Þór Kemp, körfubolta kappi er sonur þeirra Rakelar Kemp Guðnadóttur og Maríu Önnu Kemp Guðmundsdóttur. Hann er elstur af sínum bræðrum, yngri bræður hans heita Daníel Örn og Guðni Freyr. Stefán ólst upp á Reyðafirði áður en hann flutti á Krókinn þar sem hann býr í dag. Lífsmottóið hans er, að verða betri en ég var í gær.Meira
