„Nýprent Open“ haldið í 6. skiptið á Hlíðarendavelli
Sunnudaginn 1. júlí sl. var „Nýprent Open“ barna- og unglingagolfmótið haldið á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki. Mótið er hluti af Norðurlandsmótaröð barna-og unglinga og var þetta mót númer 2 í röðinni en mótin eru 4. Mótið er kynja-og aldursskipt og einnig er spilað í byrjendaflokkum. Eldri flokkarnir spiluðu 18 holur en 12 ára og yngri og byrjendur spiluðu 9 holur.
Það voru 75 kylfingar sem mættu til leiks á þessu móti víðs vegar af Norðurlandi. Frá Akureyri (GA) komu 27, frá Húsavík (GH ) kom 1, frá Dalvík (GHD) komu 16, frá Ólafsfirði (GÓ) komu 6, frá Blönduósi ( GÓS) kom 1 og loks frá Golfklúbbi Sauðárkróks (GSS) komu 24. Mótið tókst mjög vel í alla staði og veðurguðirnir voru líka mjög hliðhollir.
Kylfingar úr Golfklúbbi Sauðárkróks stóðu sig mjög vel og aldrei hafa fleiri kylfingar frá klúbbnum tekið þátt í mótaröðinni. Sigríður Eygló Unnarsdóttir sigraði í 17-18 ára flokknum og einnig Arnar Geir Hjartarson í sama flokki, Þröstur Kárason varð í 3.sæti í sama flokki.
Í flokki 15-16 ára varð Aldís Ósk Unnarsdóttir í 2. sæti. Í flokki 14 ára og yngri varð Matthildur Kemp Guðnadóttir í 2. sæti. Hákon Ingi Rafnsson varð í 2. sæti í flokki 12 ára og yngri. Í byrjendaflokki varð Viktor Kárason í 2.sæti og Daníel Ingi Halldórsson í því 3. Aldís Ósk var síðan með flesta punkta af stelpunum.
Nýprentsmeistarar voru síðan krýndir en þá nafnbót hljóta þau sem fara á fæstum höggum. Það voru Dalvíkingarnir Arnór Snær Guðmundsson og Birta Dís Jónsdóttir sem varðveita farandbikarana næsta árið.
Texti og myndir: Hjörtur Geirmundsson.
Öll úrslit koma hér ásamt aukaverðlaunum.
17-18 ára stúlkur | |||
1. Sigríður Eygló Unnarsdóttir | GSS | 89 högg | |
2. Jónína Björg Guðmunsdóttir | GHD | 91 högg | |
17-18 ára strákar | |||
1. Arnar Geir Hjartarson | GSS | 82 högg | |
2. Björn Auðunn Ólafsson | GA | 83 högg | |
3. Þröstur Kárason | GSS | 94 högg | |
15-16 ára stúlkur | |||
1. Birta Dís Jónsdóttir | GHD | 84 högg | |
2. Aldís Ósk Unnarsdóttir | GSS | 87 högg | |
3. Þórdís Rögnvaldsdóttir | GHD | 90 högg | |
15-16 ára strákar | |||
1. Ævarr Freyr Birgisson | GA | 76 högg | |
2. Tumi Hrafn Kúld | GA | 77 högg | |
3. Víðir Steinar Tómasson | GA | 84 högg | |
14 ára og yngri stelpur | |||
1. Ólöf María Einarsdóttir | GHD | 95 högg | |
2. Matthildur Kemp Guðnadóttir | GSS | 99 högg | |
3. Magnea Helga Guðmunsdóttir | GHD | 106 högg | |
14 ára og yngri drengir | |||
1.Arnór Snær Guðmundsson | GHD | 74 högg | |
2. Daníel Hafsteinsson | GA | 77 högg | |
3. Stefán Einar Sigmundsson | GA | 83 högg | |
12 ára og yngri stelpur | |||
1. Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir | GHD | 61 högg | e.bráðabana |
2. Ásrún Jana Ásgeirsdótir | GHD | 61 högg | |
3. Amanda Guðrún Bjarnadóttir | GHD | 62 högg | |
12 ára og yngri drengir | |||
1. Sveinn Margeir Hauksson | GHD | 51 högg | |
2. Hákon Ingi Rafnsson | GSS | 53 högg | |
3. Brimar Jörvi Guðmundsson | GA | 59 högg | |
Byrjendaflokkur stelpur | |||
1. Andrea Ýr Ásmundsdóttir | GA | 49 högg | |
2. Íris Katla Jónsdóttir | GA | 53 högg | |
3. Jana Þórey Bergsdóttir | GA | 55 högg | |
Byrjendaflokkur drengir | |||
1. Mikael Máni Sigurðsson | GA | 38 högg | |
2. Viktor Kárason | GSS | 46 högg | |
3. Daníel Ingi Halldórsson | GSS | 49 högg | |
Flestir punktar á 18 holum | |||
Aldís Ósk Unnarsdóttir | GSS | 40 pkt | |
Arnór Snær Guðmundsson | GHD | 40 pkt | |
Nýprentsmeistar fyrir fæst högg á 18 holum | |||
Birta Dís Jónsdóttir | GHD | 84 högg | |
Arnór Snær Guðmundsson | GHD | 74 högg | |
Næst holu á 6. braut | |||
17-18 ára Björn Auðunn Ólafsson GA | |||
15-16 ára Reynir Örn Hannesson GH | |||
14 ára og yngri Daníel Hafsteinsson GA | |||
12 ára og yngri Amanda Guðrún Bjarnad.GHD | |||
Byrjendaflokkur Jana Þórey Bergsd. GA | |||
Vippkeppni | |||
17-18 ára Jónína Björg Guðmunsd. GHD | |||
15-16 ára Tumi Hrafn Kúld GA | |||
14 ára og yngri Elvar Ingi Hjartarson GSS | |||
12 ára og yngri Hákon Ingi Rafnsson GSS | |||
Byrjendaflokkur Monika Birta Baldvinsd. GA |
.