Stólarnir spila í Bristol í kvöld
Körfuknattleikslið Tindastóls hefur verið á frægðarferð um Evrópu þar sem þeir leika í ENBL-deildinni. Búið er að leggja tvö lið í parket en það eru BC Jonava frá Litháen og Liapaja frá Lettlandi. Í kvöld mæta Stólarnir Bristol Flyers frá Englandi. Leikurinn hefst kl: 18.45 og er sýndur á þeirri góðu rás. TindastóllTV.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
„Ooo, ef ég gæti nú bara farið aftur í tímann og séð hvað hér gekk á“
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni 15.10.2026 kl. 16.01 oli@feykir.isHvernig var lífið í verbúðum við ysta haf á 12. öld? Hvernig stytti fólk sér stundir þegar enginn var síminn eða sjónvarpið? Undanfarin sumur hefur fornleifarannsókn farið fram í Hafnabúðum á Hjallanesi í landi Hafna á Skaga þar sem umfangsmikil verbúðabyggð hefur verið við sjávarsíðuna. Markmiðið með rannsókninni var að rannsaka líf og starf fólks í gamalli verstöð og hvernig sjávar- og strandauðlindir voru nýttar. Rannsóknirnar benda til þess að starfsemin hafi verið fjölbreytt. Þar fundust meðal annars vísbendingar um fiskveiðar, hvalveiðar, selveiðar, textílvinnu og matargerð. Konur, menn og börn hafa dvalið á staðnum, en ekki eingöngu karlmenn líkt og uppistaðan í seinni tíma hugmyndum um verstöðvar og sjómennsku hefur oft verið.Meira -
Tindastóll – Ármann í kvöld
Þá er komið að fyrsta heimaleik hjá Tindastóli í Bónusdeild karla. Mótherjarnir eru kapparnir í Ármanni en þeim er ekki spáð góðu gengi í deildinni. Spekingarnir á karfan.is segja: „Ingvi Þór Guðmundsson er frábær leikmaður. Lið Ármanns að öðru leyti? Neibb, lóðbeint niður eins og staðan er núna.” Þeir segja líka: „Hvernig tekst Tindastóli að leysa verkefnið í Síkinu með ökkla Drunga laskaðan? Getur Ingvi Þór Guðmundsson haldið Ármanni á floti gegn Stólunum og afsannað hrakspárnar?”Meira -
Marktækt meira kolefni í jarðvegi í beitilandi en óbeittu
Á vef Háskóla Íslands á Hólum er birt mjög svo áhugaverð grein um rannsóknir á kolefnisbindingu í beittu landi og óbeittu. Niðurstöður stangast nokkuð á við það sem haldið hefur verið fram af náttúruverndarfólki sem barist hefur fyrir friðun á landi.Meira -
Páll Óskar heimsækir grunnskólana á Skúnaskralli
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning 15.10.2026 kl. 10.44 oli@feykir.isBarnamenningarhátíð Norðurlands vestra, Skúnaskrall – Öll saman, hefst með pompi og prakt 21. október og stendur til 4. nóvember. Meðal viðburða eru hrekkjavökuböll á Hofsósi og Blönduósi, stuttmyndir frá UngRIFF í leik- og grunnskólum, Umskiptingar sýna leikritið um Fóu og Fóu feykirófu en síðast en alls ekki síst þá mun Páll Óskar heimsækja alla grunnskóla landshlutans og syngja fyrir nemendur.Meira -
Norðvesturlandið slapp vel
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 15.10.2026 kl. 09.30 hinrik@feykir.isÞá er veðrið sem hefur gengið yfir landið að láta undan síga. Hér um slóðir eru engar sögur um nein meiriháttar tjón. Um tíma höfðu menn varann á sér á Skagaströnd vegna hárrar sjávarstöðu. Sjór gekk eitthvað yfir höfnina en án skaða. Einn smábátur var við það að losna frá bryggju og aðstoðaði björgunarsveitarfólk við að tjóðra hann niður. Að sögn Reynis Lýðssonar formanns björgunarsveitarinnar Strandar var það eina útkallið sem þau fengu.Meira
