Þú átt völina en jafnframt kvölina
Nú á þriðjudaginn 28. júní verður Helena Magnúsdóttir, sjúkraþjálfari, með fyrirlestur þar sem fjallað verður almennt um forvarnir í íþróttum með aðaláherslu á knattspyrnu.
Fyrirlesturinn verður í Húsi frítímans og eru allir iðkendur og foreldrar hvattir til að mæta. Fyrirlesturinn hefst kl. 20:00.
Fleiri fréttir
-
Ármenningar brotnir á bak aftur í síðari hálfleik
Tindastóll og Ármann mættust í Bónus deildinni í körfuknattleik í Síkinu í gærkvöldi í 17. umferð. Flestir reiknuðu með öruggum sigri Stólanna, sem varð niðurstaðan, en liðin dönsuðu vangadans í fyrri hálfleik og allt jafnt í hálfleik eftir skemmtilegar 20 mínútur. Þeir sem voru orðnir þreyttir á mótspyrnu gestanna gátu tekið gleði sína í síðari hálfleik þegar leikur Ármenninga hrundi og Stólarnir sigldu í höfn með stigin tvo í trollinu. Lokatölur 113-76.Meira -
Starfið án staðsetningar | Feykir býður Ólínu Sif og fjölskyldu velkomin heim
Ólína Sif Einarsdóttir er fædd og uppalin á Sauðárkróki, dóttir Helgu Dóru Lúðvíksdóttur og Einars Gíslasonar, bróðir Ólínu er Hlynur Freyr. Ólína flutti heim á Sauðárkrók síðasta haust eftir að hafa menntað sig í Bandaríkjunum, prófaði að flytja á Ísafjörð og Akureyri en er núna flutt aftur heim á Krókinn.Meira -
„Stefni eins langt og hægt er“ | Aron Örn Ólafsson
Það er allt fullt af flottum krökkum hér á Norðurlandi vestra. Íþróttagarpur Feykis að þessu sinni er Aron Örn Ólafsson frá Blönduósi. Hann er fæddur árið 2010 og alinn upp á Blönduósi. Foreldrar hans eru Brynhildur Erla Jakobsdóttir og Ólafur Sigfús Benediktsson og Aron Örn á einn bróðir sem heitir Haukur Ingi.Meira -
Úr öskunni í eldinn | Leiðari 6. tölublaðs Feykis
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 13.02.2026 kl. 18.42 oli@feykir.isÞað styttist í þorranum ef ég skil þetta allt saman rétt. Blaðakona Feykis hefur verið á útopnu í þorrablóts-upplifunum síðustu vikurnar og sennilega hefur hún toppað sjálfa sig um liðna helgi. Átti að leika lækni í stuttum skets sem ætti ekki að hafa verið vandamál því áður en hún fór að skrifa fréttir og viðtöl vann hún á sjúkrahúsinu á Króknum. Maðurinn hennar lék sjúklinginn. Nú er ráð fyrir mig að skipta um umræðuefni...Meira -
Pétur á von á fínni skemmtun í Síkinu í kvöld
Það er körfubolti í Síkinu í kvöld en þá mætir lið Ármanns á Krókinn. Bæði lið þurfa nauðsynlega á sigri að halda; Stólarnir til að halda í við toppliðin í baráttunni um að tryggja heimavallarréttinn í úrslitakeppninni og gestirnir til að berjast fyrir því að halda sæti sínu í Bónus deildinni. Leikurinn hefst kl. 19:00 og um að gera fagna góðum árangri í Evrópu með því að styðja strákana í kvöld.Meira
