Tveir Hvatarpiltar valdir í 36 manna úrtak KSÍ
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir
27.11.2008
kl. 09.16
Húnahornið segir frá því að Hvöt eigi tvo leikmenn í 36 manna úrtaki KSÍ fyrir U17 í knattspyrnu karla sem kemur saman um næstu helgi í Reykjavík.
Þetta eru þeir Hilmar Þór Kárason og Stefán Hafsteinsson. Þjálfarar liðsins eru þeir Lúkas Kostic og Kristinn R. Jónsson. Þeir eiga án efa eftir að standa sig vel og vera sér og félaginu til mikils sóma.
Fleiri fréttir
-
Slys á Almenningum 1935 | Sögumolar Hjalta Pálssonar
Nú eru 90 ár liðin frá hörmulegum slysförum sem urðu í landi Hrauna í Fljótum hinn 4. nóvember 1935 þegar þrír ungir menn og frískir urðu úti við fjárleitir á Almenningum á leið út að Máná á Úlfsdölum. Þeir lögðu af stað frá Máná inn á Almenn-inga mánudagsmorguninn 4. nóvember. Komu þeir eftir hádegi inn í Hraun og höfðu þar skamma viðdvöl en fóru aftur áleiðis heim um tvöleytið. Litlu síðar brast á ægiveður af norðaustri með krapahríð og varð veðurhæð mikil um Úlfsdali og Almenninga.Meira -
„Ægilega vandræðalegt að labba inn kirkjugólfið“
Kristín Birgisdóttir er frá Kornsá í Vatnsdal en býr núna á Blönduósi. Kristín er í sambandi og á eina sex ára skottu. Hún vinnur sem aðstoðarleikskólastjóri í Leikskóla Húnabyggðar, svo mætti líka kalla það vinnu að ala upp barn og mann. Hún rifjaði upp fermingardaginn í FermingarFeyki en Kristíns fermdist frá Undirfellskirkju 19. apríl 1998.Meira -
Vonskuveður annan í páskum og Holtavörðuheiði lokað á hádegi
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 06.04.2026 kl. 02.38 oli@feykir.isVeðurstofa Íslands spáir vonskuveðri annan í páskum og eru ýmist gular eða appelsínugular viðvaranir í gildi á landinu fram á þriðjudagsmorgun. Veðrið virðist verða verst á sunnan- og vestanverðu landinu en gil viðvörun tekur gildi á Norðurlandi vestra um kl. 16:00 en gert er ráð fyrir að hún detti úr gildi aðfaranótt þriðjudags. „Austan 15-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s, hvassast austantil á svæðinu. Einnig má búast við snjókomu eða skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð. Varasamt ferðaveður,“ segir í viðvörun Veðurstofunnar.Meira -
„Gæti ekki hugsað mér betri stað“ | Þórunn Inga frá Enniskoti í Víðidal segir frá
Síðast heimsóttum við Helgu Hinriks til Moss í Noregi og þar var nú ekki leiðindunum fyrir að fara. En okkur er ekki til setunnar boðið, við vippum bakpokanum á bakið, tékkum á því hvort vegabréfið sé ekki örugglega á vísum stað og dembum okkur í flug til Dúbaí og það á stríðstímum. Auðvitað engin glóra í þessu ferðalagi ef ekki væri fyrir það að við þurfum að taka hús á frænku Helgu, Þórunni Ingu Kristmundsdóttur, frá Enniskoti í Víðidal en þar ólst hún upp með tvíburasystur sinni. Þær eru fæddar árið 1988 og foreldrarnir eru Kristmundur Ingþórsson og Sigrún Herdis Sigurbjartsdóttir.Meira -
Prestur þarf fyrst og fremst að vera góð manneskja
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni 05.04.2026 kl. 12.00 oli@feykir.isSéra Gísli Gunnarsson í Glaumbæ í Skagafirði var vígður Hólabiskup þann 14. ágúst 2022. Það er því löngu kominn tími á að spjalla við Gísla um heima og geima. Hann er fæddur snemma árs 1957, sonur Gunnars Gíslasonar, prests og prófasts í Glaumbæ sem einnig var um árabil þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Ragnheiðar Margrétar Ólafsdóttur, safnvarðar við Byggðasafnið í Glaumbæ. Gísli er yngstur í hopi sex systkina. Gísli er giftur Þuríði Kr. Þorbergsdóttur og þau eiga fjögur uppkomin börn; synina Gunnar og Þorberg og dæturnar Margréti og Aldísi Rut.Meira
