Ný brú komin yfir Vatnsdalsá

Bráðabrigðabrúin yfir Vatnsdals á er klár, hún er 45 m löng stálbitabrú. Ljósm./Vegagerðin.is
Bráðabrigðabrúin yfir Vatnsdals á er klár, hún er 45 m löng stálbitabrú. Ljósm./Vegagerðin.is

Samkvæmt vef Vegagerðarinnar hefur brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar nú lokið við að byggja bráðbirgðabrú yfir Vatnsdalsá við Grímstungu en um er að ræða 45 m langa stálbitabrú. Gamla brúin féll undan efnisflutningabíl í síðasta mánuði.

Brúarvinnuflokkurinn, sem telur fimm til sex menn, hóf smíðina á sjálfri brúnni þann 4. september og luku henni þann 18. september en þá átti eftir að fylla að.

„Fyrst þurfti þó flokkurinn að rífa gömlu brúna svo sem sjá má á myndunum sem fylgir. Vel og greiðlega gekk að smíða brúna sem er 45 m löng stálbitabrú með timburgólfi í þremur höfum. Akbrautarbreidd er 3,6 m og heildarbreidd 4,0 m. Miðhaf brúarinnar er 22 m langt, undirstöður eru nálægt árbökkum beggja vegna og því var lítið hreyft við ánni sjálfri. Undirstöður eru í landi í fyllingu báðum megin,“ segir um framkvæmdina á vefnum.

Fram kemur að bráðabirgðabrúin hafi verið byggð fyrir fullt umferðarálag.  200 m langar vegtengingar voru lagðar beggja vegna brúarinnar og lauk því verki endanlega í gær. Efnismagn í vegtengingum er um 3000 m3.

„Umferð er nú öllum opin. Ekki er vitað hvenær verður ráðist í gerð nýrrar brúar né hvernig sú mun líta út. Það ræðst af fjárveitingum fyrst og fremst,“ segir að lokum á vef Vegagerðarinnar. 

Meðfylgjandi myndir eru fengnar af vef Vegagerðarinnar en þar má skoða fleiri myndir frá framkæmdinni. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir