Heimir á Skagaströnd í kvöld - Myndband

Karlakórinn Heimir í Skagafirði mætir í Hólaneskirkju á Skagaströnd í kvöld með fjölbreytta efnisskrá að vanda. Boðið verður upp á einsöng, tvísöng og kvartett auk hefðbundins kórsöngs. Einsöngvarar eru tveir, Birgir Björnsson og Óskar Pétursson.

Óskar Pétursson þarf vart að kynna, fæddur og uppalinn í Álftagerði, einn Álftagerðisbræðra og hefur um langt skeið glatt áheyrendur um land allt með söng og líflegri framkomu.

Birgir Björnsson kemur frá Akureyri, er af Mannskaðaætt út að austan, eins og sagt er í Skagafirði. Hans rætur liggja sem sagt á Mannskaðahóli á Höfðaströnd Hann syngur alla jafna með kórnum og sækir æfingar frá Akureyri.

Stjórnandi kórsins er Stefán R. Gíslason og undirleikari Thomas R. Higgersson.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og verða miðar seldir við innganginn.

Hér fyrir neðan má sjá skemmtilega uppákomu, sem birt er á fésbókarsíðu kórsins, frá æfingu  er þeir Pétur Pétursson og Birgir Björnsson syngja tvísöng í "Ætti ég hörpu". Hver veit nema þetta hljómi á Skagaströnd kvöld.

Hér er skemmtileg uppákoma frá æfingu. Pétur Pétursson og Birgir Björnsson syngja tvísöng í " Ætti ég hörpu". Hver veit nema þetta hljómi á Hofsósi annað kvöld?

Posted by Karlakórinn Heimir on 10. mars 2017

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir