Náttúran finnur sér leið
Lítill túnfífill hefur tekið sér bólfestu á svölunum á Kjarnanum á Sauðárkróki. Kannski ekki stærsta fréttin þessa dagana, og þó. /hmj
Fleiri fréttir
-
Það er bleytuveður í dag en þetta lagast
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 29.09.2026 kl. 09.46 oli@feykir.isHausttilboð Veðurstofunnar síðustu daga hefur að mestu verið rok og rigning, þokubakkar og þung ský. Ekki beinlínis uppörvandi tilboð og reikna má með að svipaða sögu verði að segja í dag og fram eftir morgnundeginum. En eins og skáldið góða, Helgi Bjöss, benti á í upphafi Covid-faraldursins, þá styttir alltaf upp og samkvæmt veðurspám þá má reikna með að einmitt það gerist seinni part miðvikudags, Sæmilegustu hlýindi og sólargeislar fá stærri rullu fram á sunnudag.Meira -
Lögreglan er sátt við helgina
Á Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðvesturlandi má lesa þessa ánægjulegu færslu: „Laufskálaréttarballið, fjölmennasti dansleikur svæðisins ár hvert, var haldið í gærkvöldi. Þar koma jafnan saman hátt í 1.000 manns og því skiptir miklu máli að allir leggist á eitt um að skapa öruggt umhverfi.Meira -
Skagfirsk hlaupakona í landsliðinu
Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum hefur verið valið fyrir HM sem fer fram í næsta mánuði. Íslandsmethafinn Þorleifur Þorleifsson er í liðinu og einnig er þar að finna hlaupadrottninguna Mari Järsk. Fimmtán hlauparar munu hlaupa fyrir Íslands hönd á HM landsliða sem hefst þann 17. október næstkomandi í 74 löndum.Meira -
Sigurdís snýr heim með nýja plötu
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning, Lokað efni 28.09.2026 kl. 09.45 hinrik@feykir.isTónskáldið, píanóleikarinn og söngkonan Sigurdís Tryggvadóttir frá Ártúnum í Blöndudal snýr aftur á heimaslóðir með sína fyrstu plötu, Bergmál fjallanna. Sigurdís verður með þrenna útgáfutónleika á Norðvesturlandi af þessu tilefni. Hún hefur leikinn í Blönduóskirkju 31.okt. kl: 14. 1.nóv. verður hún í Hvammstangakirkju kl: 14. Tónleikaröðinni lýkur svo Miðgarði í Varmahlíð 4. nóv. og hefjast tónleikarnir kl. 20. Aðgangur er ókeypis. Tónleikarnir vara í klukkustund og boðið verður upp á vöfflukaffi að tónleikum loknum.Meira -
Risarnir frá Litháen lagðir í parket
Tindastólsmenn gerðu sér lítið fyrir og lögðu lið BC Jonava í Litháen í dag þegar Stólarnir spiluðu annan leik sinn í ENBL-deildinni þetta tímabilið. Arnar þjálfari var ánægður með liðið sitt og benti á í samtali við Feyki að þarna hefðu Stólarnir verið að spila við risalið frá einni stærstu körfuboltaþjóð Evrópu. „Það er mjög stórt fyrir íslenskt lið að koma og vinna lið í efstu deild í Litháen,“ sagði Arnar og jaðraði við að hann væri pínu montinn. Leikurinn var lengstum jafn en okkar menn voru sterkari á endasprettinum og unnu leikinn 71-77.Meira
