Tekið til kostanna í kvöld
Í reiðhöllinni Svaðastöðum verður líf og fjör í kvöld því þar verður „Tekið til kostanna" hestasýning með léttum brag. Skagfirskir hestar og menn í öllum útgáfum. Sérstaklega má nefna „Töltgrúbbuna" hóp glæsikvenna sem æft hafa vikum saman munsturreið sem þær munu sína gestum.
Húsið opnar kl. 19:00.
Miðaverð 4.000 kr.
Frítt fyrir 13 ára og yngri.
/hmj
