„Það er gaman þegar gestirnir okkar eru ánægðir“

Myndin er úr studioíbúð í risinu. Við innréttingu íbúðanna var reynt að blanda nýju saman við gamla muni úr húsinu og víðar að til að skapa heimilislegt andrúmsloft. Myndir tóku Hildur María Valgarðsdóttir og Þóra Kristín Þórarinsdóttir.
Myndin er úr studioíbúð í risinu. Við innréttingu íbúðanna var reynt að blanda nýju saman við gamla muni úr húsinu og víðar að til að skapa heimilislegt andrúmsloft. Myndir tóku Hildur María Valgarðsdóttir og Þóra Kristín Þórarinsdóttir.

Frostastaðir sveitagisting í Blönduhlíð í Skagafirði er í eigu Þórarins Magnússonar, bónda, og Söru R. Valdimarsdóttur, kennara, sem búsett eru á Frostastöðum, um 12 kílómetra frá Varmahlíð. Þau sjá bæði um reksturinn en einnig hafa tvær dætra þeirra, Inga Dóra og Þóra Kristín, hjálpað til við framkvæmdir og rekstur ásamt tengdasonunum Edu og Rúnari. Það er ekki langt síðan gamla húsið var tekið í gegn og farið var að bjóða gistingu í þremur vel útbúnum íbúðum.

„Það má reyndar segja að þessi gisting hafi bara orðið því aðstæður réðu því að á Frostastöðum var stórt íbúðarhús, byggt 1947, sem stóð að mestu autt, hafði ekki fengið viðhald í áratugi og var í afar slæmu ásigkomulagi,“ segir Sara. „Húsið á áhugaverða sögu því í því bjuggu fjórir bræður, allir bændur, ásamt fjölskyldum sínum. Þar ólust upp fjölmörg börn auk allra sumarbarnanna sem þar dvöldu um styttri eða lengri hríð. Þegar fyrst var búið að taka ákvörðun um að gera húsið upp þá kom það eiginlega af sjálfu sér að nýta það sem gistiaðstöðu.“

Framkvæmdir hófust haustið 2014. Það var Sveinn Brynjar Friðriksson, smiður, sem ásamt heimilisfólki hóf endurbætur á gamla húsinu með að skipta um jarðveg undir húsinu og styrkja undirstöður þess. „Einn tengdasonurinn, Eduardo, var nýfluttur til landsins frá Argentínu og fékk sannkallaða eldskírn í íslenskri Kleppsvinnu við að moka mold upp og út og möl inn – allt með skóflu og hjólbörum. Seinna tók fyrirtæki föðurs Sveins Brynjars, Lambeyri ehf, við verkinu með Guðmund Guðmundsson frá Fossum sem yfirsmið. Við gætum ekki verið ánægðari með þeirra verk og margir gestir hafa nefnt hversu handbragð á allri smíðavinnu er fallegt,“ segir Sara. 

Nú er búið að gera upp þrjár íbúðir í húsinu auk þess að skipta um þak, einangra og klæða húsið utan. Íbúðirnar þrjár eru allar í útleigu en framkvæmdum á neðstu hæð er enn ólokið. „Þar er ætlunin að bæta við gistiherbergjum. Íbúðirnar hafa allar eldunaraðstöðu en gestir geta keypt morgunmat og kvöldmat hjá okkur ef þeir óska,“ bætir Sara við.

Ansi margir bændur hafa tekið sig til og útbúið gistiaðstöðu hjá sér; hvers vegna, hvað er það sem heillar?„Að reka gistingu í sveit fer vel með sauðfjárbúskap, því það er mest að gera í gistingunni á sumrin þegar fé er á fjalli. Okkur finnst mjög skemmtilegt að reka þessa gistingu, við hittum fjöldann allan af skemmtilegu og áhugaverðu fólki og það er gaman þegar gestirnir okkar eru ánægðir. Þeir nefna oft hvað þeim finnst mikils virði að geta spjallað við okkur, fólkið sem býr í þessu landi og þannig fræðst persónulega um hvernig er að búa hér. Við fáum oft mjög skemmtilegar spurningar um lífið og tilveruna á Íslandi og gerum okkar besta til að leysa úr þeim. Við höfðum reyndar komist á bragðið með að vera gestgjafar áður því við vorum með Airbnb gistingu og morgunmat í okkar íbúðarhúsi áður en gamla húsið var komið í stand og líkaði það mjög vel.“

Hefur Covid-faraldurinn sett strik í reikninginn hjá ykkur? „Þrátt fyrir Covid var bara þó nokkuð að gera hjá okkur í júlí, ágúst og alveg fram í septemberlok en með hertum aðgerðum á landamærum var búið með það. Við, eins og allir aðrir gistiaðilar, vonum að næsta ár verði betra og að við getum haldið áfram að kynna okkar fallega fjörð og land fyrir gestum.“

Hvernig gestir eru það sem heimsækja Frostastaði? „Langstærstur hluti okkar gesta eru erlendir gestir sem eru að aka hringinn um landið á bílaleigubílum. Við viljum mæta okkar gestum á persónulegum nótum, hér eru til dæmis engin lyklabox fyrir íbúðirnar, heldur tökum við á móti gestunum þegar þeir koma og við reynum að vera dugleg að spjalla við þá og verða þeim að liði með fræðslu um afþreyingu og  áhugaverða staði að heimsækja. Stundum þarf að bregðast fljótt og vel við eins og til dæmis þegar komu hér franskir gestir um sjö leytið á gamlársdagskvöldi. Þeir höfðu bókað gistingu en ekki áttað sig á því að hér væru bæði veitingastaðir og búðir lokaðar þennan dag –  voru því matarlausir og komust ekki út að borða. Þá var ekki annað að gera en tína til í fljótheitum eitthvað matar- og drykkjarkyns svo þeir gætu útbúið sér góða gamlársmáltíð. Sem við og gerðum og kvöddum þá hina ánægðustu næsta dag,“ segir Sara að lokum.

Eins og sjá má á myndunum sem fylgja umfjölluninni hafa breytingar á húsnæðinu tekist með miklum ágætum, öll aðstaða er bæði falleg, hlý og persónuleg og blaðamaður er hreinlega undrandi á að gestirnir fáist yfirleitt til að yfirgefa Frostastaði sveitagistingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir