188 áhorfendur mega mæta í Síkið á sunndaginn
KR-ingar mæta í Síkið á sunnudag þar sem hungraðir og stigaþyrstir heimamenn bíða eftir þeim. Þetta verður fyrsti leikurinn síðan í haust þar sem áhorfendur mega mæta á pallana en að sjálfsögðu gilda strangar reglur um sóttvarnir og panta þarf sæti í Síkinu með fyrirvara. Aðeins 188 áhorfendur mega mæta til leiks þar sem gæta þarf að tveggja metra reglunni sígildu en pallarnir í Síkinu er 376 fermetrar.
Áhorfendum verður ekki hleypt á svalirnar og gerðar eru kröfur um að allir gestir sitji og séu ekki andspænis hvor öðrum. Miðasala er rafræn og þeir sem ætla á leikinn þurfa að hlaða niður greiðsluforritinu Stubbur og borga með því en aðgangseyrir er kr. 2000. Ársmiðahafar verða að hafa kortin meðferðis á leikinn en þeir hafa forkaupsrétt á miðum til miðnættis daginn fyrir leik.
Miðasala á leikinn verður því með eftirfarandi sniði.
1. Árskortshafar geta skráð sig á leikinn í eftirfarandi formi. En skráning á leikinn verður opin til miðnættis dagin fyrir leik. https://docs.google.com/.../1FAIpQLSeT.../viewform...
2. Miðar sem standa eftir skráningu árskortshafa verða seldir á Stubbi miðasölu.
Athugið að aðeins skráðir áhorfendur fá aðgang inn á leikinn, engin miðasala fer fram á leik. Aðeins greidd árskort eru tekin gild. Allir gestir eiga að notast við aðalinngang í íþróttahúsinu, uppi að vestan þar sem miðasalan er undir venjulegum kringumstæðum. Þá er rétt að benda á að öllum gestum ber að nota andlitsgrímur og tryggja þarf að fjarlægð milli ótengdra aðila sér a.m.k. einn metri og gildir það bæði um börn og fullorðna. Stuðningsmenn eða aðrir aðilar mega alls ekki fara inn á keppnissvæðið og öfugt. Veitingasala fer fram á leiknum og ku vera hægt að panta hamborgara fyrirfram á Stubbi eða á staðnum fyrir leik. Gestir eru hvattir til að forðast hópmyndanir fyrir leik, í hálfleik og eftir leik.
Það er því um að gera panta sæti í tíma og mæta í Síkið með jákvæðnina og raddböndin að vopni. Athugið að leikurinn hefst kl. 20:15. Áfram Tindastóll!
- - - - -
Fréttin var uppfærð 15:25. Fjöldi áhorfenda fór úr 122 í 188.