1238 tilnefnd til Heritage in Motion verðlaunanna

Frá opnun sýningarinnar um valdabrölt Íslendinga á þrettándu öld. Ártalið 1238 vísar í Örlygsstaðabardaga, fjölmennustu orrustu sem háð hefur verið á Íslandi. Hún fór fram við eyðibýlið Örlygsstaði í landi Víðivalla í Blönduhlíð í Skagafirði þann 21. ágúst 1238. Mynd: PF
Frá opnun sýningarinnar um valdabrölt Íslendinga á þrettándu öld. Ártalið 1238 vísar í Örlygsstaðabardaga, fjölmennustu orrustu sem háð hefur verið á Íslandi. Hún fór fram við eyðibýlið Örlygsstaði í landi Víðivalla í Blönduhlíð í Skagafirði þann 21. ágúst 1238. Mynd: PF

Sýningin 1238 – Baráttan um Ísland sem fjallar um Sturlungaöldina og opnuð var á Sauðárkróki sumarið 2019 hefur verið tilnefnd til verðlaunanna Heritage in Motion. Árlega eru framleiðendur kvikmynda, leikja, upplifana, smáforrita og heimasíðna sem byggja á menningararfleifð Evrópu verðlaunuð en markmiðið er að vekja athygli á bestu verkefnunum sem unnin eru í stafrænni miðlun evrópsks menningararfs.

„Viðurkenning sem þessi er kærkomin og hvetur okkur til að halda ótrauð áfram á þeirri vegferð sem við erum á, og láta ekki staðar numið við Sturlungu“, segir Áskell Heiðar Ásgeirsson framkvæmdastjóri. „Í íslenskum fornsögum er dýrmætur efniviður og óþrjótandi efni til að skapa eitthvað áhugavert úr. Í tengslum við ferðaþjónustu er áhersla að aukast á það á heimsvísu að söfn og sýningar bjóði gestum fjölbreytta upplifun og þar er spennandi að nýta stafrænar lausnir. Þær munu hjálpa til við að miðla menningararfi okkar á skapandi og spennandi hátt. Sýningin okkar á Sauðárkróki er í þeim anda og getur verið fyrirmynd annarra verkefna sem byggð væru á svipuðum grunni.“

Verðlaunin, sem eru á vegum Europa Nostra og Ema - European Museum Academy verða veitt við hátíðlega athöfn á ráðstefnunni European Cultural Heritage Summit, sem fram fer 21.-24. september í Feneyjum.

Áskell Heiðar segir starfsfólk, eigendur og hönnuði sýningarinnar full af stolti yfir því að vera meðal tilnefndra til þessara virtu verðlauna. Sýningin alfarið verk íslenskra tæknimanna og þrívíddarhönnuða, og staðfesti verðlaunin hve vel staðið hefur verið að verkefninu. Hann segir jafnframt að sýningin og hennar frumlega og nýstárlega miðlun á sögu Sturlungaaldarinnar hafi hlotið frábærar viðtökur hjá gestum sýningarinnar á undanförnum tveimur árum.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir