20 kærðir fyrir of hraðan akstur við Héraðsvatnabrú vesturóss
Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur síðustu þrjá daga farið af og til og fylgst með umferð við vesturós Héraðsvatna en þar hafa Vinnuvélar Símonar verið í framkvæmdum. Ekki hafa allir ökumenn virt hraðatakmarkanir á svæðinu því 20 þeirra hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur og átta þeirra ekið á sviptingarhraða. Sá sem hraðast ók var á þreföldum leyfilegum hámarkshraða.
Á Facebooksíðu lögreglunnar segir að hraði hafi verið tekinn niður í 30 km/klst. yfir brúna og merkingar verktaka séu til fyrirmyndar að mati lögreglu svo ekki ætti að fara fram hjá nokkrum manni að þarna sé hraði tekinn niður og um vinnusvæði að ræða.
„Lögreglan ítrekar að mjög mikilvægt sé að ökumenn virði hraðatakmarkanir þar sem þarna eru menn við vinnu og stórhætta getur skapast ef menn aka of greitt í gegnum vinnusvæðið.“
Að sög Rúnars Símonarsonar klárast verkið í dag en verið er að leggja lokahönd á að koma hitaveitu og ljósleiðara yfir Vötnin neðan á brúnni.