214 milljóna gjöf til uppbyggingar á skólamannvirkjum í Varmahlíð

Í gær fór fram stjórnarfundur Menningarseturs Skagfirðinga, sem áður hét Varmahlíðarfélagið, og þar ákvað stjórnin að leggja félagið niður þar sem hlutverk og áherslur þess hafa breyst í tímans rás. Sömuleiðis var ákveðið að allar eigur Menningarsetursins skyldu afhentar sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem eru eftir sölu eigna, 214 milljónir.
Í niðurlagi gjafabréfsins sem afhent var sveitarstjórn segir að „...í ljósi stofnskrár og með hliðsjón af sögu Menningarseturs Skagfirðinga fylgir gjöfinni sú kvöð að þessum fjármunum skal varið til uppbyggingar skólamannvirkja í Varmahlíð.“ Annars er texti bréfsins á þessa leið:
„Menningarsetur Skagfirðinga er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var 1958. Skipulagsskrá hennar var samþykkt af dómsmálaráðherra og forseta Íslands árið 1965. Stofnendur voru áhugafólk um uppbyggingu á skóla og þjónustu í Varmahlíð. Forveri Menningarseturs Skagfirðinga var Varmahlíðarfélagið sem var stofnað árið 1936, og hafði það meginmarkmið að byggja upp héraðsskóla í Varmahlíð. Til að sú uppbygging gæti orðið að veruleika keypti Varmahlíðarfélagið jarðirnar Reykjarhól og Varmahlíð af ríkissjóði árið 1941, en segja má að þær fjárfestingar hafi verið undirstaðan í allri uppbyggingu í Varmahlíð.
Með tímanum hafa hlutverk og áherslur hjá Menningarsetri Skagfirðinga breyst, sveitarfélögin hafa einnig stækkað og þjónustuhlutverk þeirra aukist í bæði skólamálum sem og á öðrum sviðum. Stjórn Menningarseturs Skagfirðinga hefur því ákveðið að hætta starfsemi og afhenda sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar allar eigur Menningarsetursins sem eru eftir sölu eigna, 214.000.000, tvöhundruð og fjórtán milljónir. Í ljósi stofnskrár og með hliðsjón af sögu Menningarseturs Skagfirðinga fylgir gjöfinni sú kvöð að þessum fjármunum skal varið til uppbyggingar skólamannvirkja í Varmahlíð.
Samþykkt á stjórnarfundi Menningarseturs Skagfirðinga 17. desember 2020“
Undir bréfið skrifa Einar E. Einarsson, formaður, Gunnsteinn Björnsson, Jón Daníel Jónsson, Stefán Gísli Haraldsson og Björg Baldursdóttir.