3-0 tap í síðasta leik sumarsins
Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastóli mætti HK/Víkingi á Víkingsvelli í gærkvöldi. Milena Pesic kom heimamönnum yfir á 19. mínútu og sjö mínútum síðar bætti Hugrún María Friðriksdóttir við öðru marki HK/Víkings.
Seinni hálfleikur var rétt hafinn þegar Elma Lára Auðunsdóttir skorar þriðja og síðasta mark HK/Víkings í leiknum. Lokatölur 3-0.
Tindastólsstúlkur eru í 4. sæti riðilsins með 21 stig eftir 16 leiki. HK/Víkingur situr í 2. sæti með 37 stig eftir 15 leiki.
Tindastólsstúlkur hafa staðið sig glæsilega í sumar og verður spennandi að fylgjast með þeim.