Aflétting rýminga á fimm húsum í Varmahlíð

Svæðið þar sem skriðan fór af stað í Varmahlíð. Mynd: Gréta María Halldórsdóttir.
Svæðið þar sem skriðan fór af stað í Varmahlíð. Mynd: Gréta María Halldórsdóttir.

Almannavarnarnefnd Skagafjarðar ákvað á fundi sínum seinnipartinn í dag að aflétta rýmingu á húsum í Varmahlíð við Norðurbrún 5, 9 og 11 og við Laugaveg 13 og 21, frá og með kl. 21 í kvöld. Áfram eru Norðurbrún 7, Laugavegur 15 og 17, og Laugahlíð rýmd. 

"Unnið hefur verið á vettvangi í dag við rannsóknir á orsökum aurskriðunnar og aðgerðum til að fyrirbyggja frekara tjón. Með aðgerðum dagsins hefur tekist að þrengja hættusvæðið. Vinnu við frekari rannsóknir, hreinsun og uppbyggingu verður haldið áfram næstu daga. Jafnframt tók almannavarnanefnd ákvörðun um að aflétta lokun á skíðasvæðinu í Tindastóli frá og með kl. 21 í kvöld þar sem ekki er talin hætta á frekari skriðuföllum á svæðinu," segir í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi vestra.

/SMH

 

Fleiri fréttir