Áform um álver á Hafursstöðum í biðstöðu
Í fréttablaðinu á mánudaginn var haft eftir Ingvari U. Skúlasyni, framkvæmdastjóra Klappa Development ehf., að framkvæmdir um álver á Hafursstöðum í Skagabyggð væri í biðstöðu. Sagði hann ástæðuna vera þá að verið væri að bíða eftir að orkufyrirtækin teldu sig geta selt orku.
Eins og Feykir hefur greint frá undirrituðu öll sveitarfélögin á Norðurlandi vestra samstarfssamning við Klappir Development ehf. í júní í fyrra. Á samningnum var kveðið á um uppbyggingu og rekstur 120.000 tonna álvers á fyrirhuguðu iðnaðarsvæði við Hafursstaði, sem eru í Skagabyggð, rétt sunnan Skagastrandar. Öll sveitarfélögin á Norðurlandi vestra
Var samningurinn gerður í framhaldi þingsályktunar sem samþykkt var á Alþingi 15. Janúar 2014, um samstillt átak stjórnvalda og sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu um eflingu atvinnulífs og sköpun nýrra starfa á Norðurlandi vestra, með uppbyggingu orkufreks iðnaðar. Einnig byggir samstarfið á sameiginlegri yfirlýsingu sveitarfélaganna og Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins, frá 10. október 2014, um eflingu atvinnulífs og sköpun nýrra starfa með nýtingu raforku sem framleidd er í sýslunni.
Viljayfirlýsing Kínverska fyrirtækisins NFC um fjármögnun liggur fyrir
Gert hefur verið ráð fyrir 240 varanlegum störfum í álveri Klappa og allt að 800 tímabundnum störfum á byggingartíma. Þann 1. júlí í fyrra undirrituðu Klappir og kínverska fyrirtækið China Nonferrous Metal Industry´s Foreign Engineering and Construction (NFC) viljayfirlýsingu um fjármögnun álversins. Þar kom fram að NFC væri falin svokölluð „alframkvæmd (e. turnkey) verkefnisins. Ábyrgðist NFC fjármögnum a.m.k. 70% kostnaðar við framkvæmdina og uppbyggingu innviða í gegnum kínverska banka eða aðra banka, auk þess að ábyrgjast byggingu allra mannvirkja sem og rekstur álversins á meðan á uppkeyrslu þess stæði. Einnig var kveðið á um samvinnu Klappa og NFC um gerð samninga við þriðja aðila um forsölu framleiðsluafurða (e. offtake) sem og um samstarf um gerð samninga við seljendur hráefnis.
Orkuþörf álversins er 206 MW, sem reiknað er með að komi frá Blönduvirkjun í samræmi við vilja og samkomulag heimamanna og stjórnvalda þegar virkjunin var byggð. Tímasetning á afhendingu á orku frá Blönduvirkjun til álvers á Hafursstöðum byggist m.a. á að þá verði fyrir hendi orka til afhendingar til núverandi viðskiptavina Blönduvirkjunar. Landsnet hafði lýst sig tilbúið til tilbúið til viðræðna við sveitarfélögin á svæðinu, svo skýra mætti flutningsþörf raforku og þar með staðsetningu háspennulína. Hins vegar höfðu bæði Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri, og Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, lýst því yfir að erfitt yrði að útvega næga orku til þess að álver í Skagabyggð yrði hagkvæmt.
Fyrri fréttir um álver á Hafursstöðum:
Orkumálastjóri telur erfitt að útvega orku fyrir álver
Kínverjar fjármagna álver á Hafursstöðum
Segir enga orku til fyrir álver í Skagabyggð
Landsnet tilbúið til viðræðna um orku fyrir álver á Hafursstöðum
Húnaþing vestra aðili að samkomulagi við Klappir Development