Áhugaverður ferðamáladagur í Húnaveri

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Ferðamálafélögin í A-Hún., Húnaþingi vestra og Skagafirði standa fyrir Ferðamáladegi Norðurlands vestra 9. nóvember næstkomandi. Allir ferðaþjónustuaðilar og þeir sem hafa áhuga á samstarfi við greinina eru boðnir velkomnir að hlýða á áhugaverða fyrirlestra og taka þátt í að móta áhugaverð samstarfsverkefni.
Dagurinn byrjar á kynningu Jónasar Guðmundssonar frá Landsbjörg/Safetravel en hún fjallar um áherslur í upplýsingagjöf til ferðamanna að vetrarlagi.
Konráð Guðjónsson frá Arion banka kynnir nýjustu ferðaþjónustuúttekt frá greiningardeild bankans og Ásta Björg Sigurjónsdóttir frá Íslenska ferðaklasanum ræðir um nýsköpun og þróun í ferðaþjónustu og tækifæri í svæðisbundinni samvinnu.
Tormod Amundsen frá Biotope kynnir tillögur sínar um uppbyggingu fuglaskoðunarstaða Fuglastígs Norðurlands vestra og fer kynningin fram á ensku.
Eftir hlé, eða frá klukkan 15:15-16:15, fer fram hópvinna en þá taka til starfa hópar á fimm borðum og skilgreina/ tilgreina tillögur að samstarfsverkefnum í ferðaþjónustu á eftirfarandi sviðum:
Matur og drykkur. Saga og menning. Handverk og hönnun. Hestar og afþreying. Náttúra og orka.
Skráning á daginn fer fram á vef SSNV, til 7. nóvember næstkomandi.
Dagskrá dagsins stendur frá klukkan 11 til 17 og er eftirfarandi:
11:00 UPPHITUN - “GÓÐ RÁÐ ÁRIÐ UM KRING” - Jónas Guðmundsson (Landsbjörg/Safetravel) kynnir áherslur í upplýsingagjöf til ferðamanna að vetrarlagi.
12:00 SÚPA og SPJALL
13:00 Inngangur
13:10 „Ferðamannalandið Ísland: Draumaland eða Djöflaeyja?“ Konráð Guðjónsson frá Arion banka kynnir nýjustu ferðaþjónustuúttekt frá greiningardeild bankans.
13:45 1 + 1 = 3 Ásta Björg Sigurjónsdóttir frá Íslenska ferðaklasanum ræðir um nýsköpun og þróun í ferðaþjónustu og tækifæri í svæðisbundinni samvinnu.
14:15 “BÍ, BÍ OG BLAKA” Tormod Amundsen frá Biotope kynnir tillögur sínar um uppbyggingu fuglaskoðunarstaða Fugfastígs Norðurlands vestra (á ensku).
14:45 KAFFIHLÉ
15:15 HÓPAVINNA
Hópar starfa á fimm borðum og skilgreina tillögur að samstarfsverkefnum í ferðaþjónustu á eftirfarandi sviðum :
• MATUR & DRYKKUR
• SAGA & MENNING
• HANDVERK & HÖNNUN
• HESTAR & AFÞREYING
• NÁTTÚRA & ORKA
16:15 STUTTAR KYNNINGAR HÓPA
16:45 SAMANTEKT/ENDIR