Aldís Embla Ungskáld Akureyrar
Skagstrendingurinn Aldís Embla Björnsdóttir, sem stundar nám við MA, hlaut á dögunum útnefninguna Ungskáld Akureyrar fyrir smásögu sína Einræðisherrann. Hlaut hún 50.000 króna verðlaun fyrir söguna, auk ritverksins „Jónas Hallgrímsson – Ævimynd“ eftir Böðvar Guðmundsson.
Glöggur lesandi hafði samband og benti á að Aldís Embla á einnig ættir að rekja í Skagafjörð, en móðuramma hennar, Aldís Hjörleifsdóttir er frá Gilsbakka, dóttir Hjörleifs Jónssonar sem var þekktur hagyrðingur og skáldmæltur vel. Hann gaf út ljóðabókina Mér léttir fyrir brjósti árið 1978.
Að samkeppninni stóðu Amtsbókasafnið á Akureyri, Akureyrarstofa, Ungmenna-Húsið, Háskólinn á Akureyri, MA og VMA með stuðningi Menningarráðs Eyþings. Tilgangurinn með samkeppninni er að hvetja fólk á aldrinum 16-25 ára til skapandi skrifa og einnig að skapa vettvang fyrir þau til að koma sér og skrifum sínum á framfæri.
Er þetta er í annað sinn sem þessi keppni fer fram. Það var Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur og dósent við Háskólann á Akureyri, sem afhenti verðlaunin fyrir hönd dómnefndar.
Í umsögn dómnefndar segir um sögu Aldísar Emblu: „Einræðisherra er forvitnileg og vel stíluð smásaga - eða örsaga. Sjónarhornið er skemmtilegt og sögumaður óvenjulegur - enda ekki oft sem smábörn á fyrsta ári láta móðan mása. En merkilegt nokk er þessi ungi sögumaður trúverðugur. Það kannast margir við þetta eigingjarna, stjórnsama eða hreinlega freka barn sem þarna fær rödd. Hnyttinn endirinn varpar hins vegar nýju ljósi á krílið - og sýnir að hér er á ferð lunkinn höfundur.“
Verkin verða birt á heimasíðu Amtsbókasafnsins á Akureyri.