Allt í plati í Miðgarði á morgun
Árshátíð 1. til 6. bekkjar Varmahlíðarskóla verður haldin í Miðgarði á morgun, laugardaginn 21. mars, kl. 14:00. Sýnt verður leikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson. „Er það Lína Langsokkur sem er í aðalhlutverki og í grallaraskap tekst henni að galdra fram sínar uppáhalds sögupersónur úr ævintýrunum,“ segir í auglýsingu.
Allt í plati er byggt á frægum sögupersónum eftir Astrid Lindgren og Thorbjorn Egner. Leikstjóri verksins er Helga Rós Sigfúsdóttir. „Búast má við óvæntum atburðum með söng og dans,“ segir í auglýsingunni.
Kaffihlaðborð verður í grunnskólanum að sýningu lokinni og er aðgangur innifalinn í miðaverðinu.
Miðaverð er 2.000.- kr. fyrir fullorðna og 1.000.- kr. fyrir börn á grunnskólaaldri. Athugið að ekki verður kortaposi á staðnum.
Skemmtilegar myndir frá generalprufunni má skoða hér.