Alþjóðleg vinnustofa hjá BioPol ehf á Skagaströnd

Í vikunni mun BioPol ehf í samstarfi við Háskólann á Akureyri halda  alþjóðlega vinnustofu þörungasérfræðinga alls staðar að úr heiminum á Skagaströnd. Dr. Bettina Scholz starfsmaður BioPol ehf og Háskólans á Akureyri  hefur haft frumkvæði að því að kalla saman 25 vísindamenn frá 11 þjóðlöndum til Skagastrandar til þess að sækja vinnustofu sem ber yfirskriftina 2nd Plankton Chytridiomycosis Workshop 15th – 17th september 2016.

Umfjöllunarefni fundarins verður samspil þörunga og  sýkingarvalda sem herja á þá í náttúrunni. Þekking á þessu sviði hefur verið takmörkuð fram til þessa og talið mikilvægt að bæta þar úr enda smáþörungar grunnur af öllu lífi sem þrífst í vatni og sjó. Meginmarkmið vinnustofunnar er að miðla upplýsingum á milli einstaka vísindamanna og undirbyggja sameiginlega styrkumsókn til Evrópusambandisins sem félli undir Horizon 2020.

Vinnustofan er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra og Rannsóknasjóði Háskólans á Akureyri.

Frekari upplýsingar um rannsóknarefnið, sem styrkt er af RANNÍS,  má finna HÉR

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir