Árshátíð Léttfeta um aðra helgi
Félagar í hestamannafélaginu Léttfeta ætla að bregða undir sig létta fætinum og halda árshátíð laugardagskvöldið 6. mars í Tjarnarbæ. Félagar kvattir til að mæta.
Í boði verður matur og gaman frá meistara Óla á Hellulandi og væri það óðs manns æði að telja það allt upp. Engin drykkjarföng verða seld á staðnum. Skemmtiatriði verða að venju t.d. pistill ferðanefndar, leikrit, söngur og trall.
Félagar eru kvattir til að mæta og taka með sér gesti. Húsið opnar kl 20:00 en borðhald hefst kl 20:30.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir miðvikudagskvöldið 3. mars til Steinunnar í síma 865-0945 eða Geira í síma 894-5832.
