Átta tíu og átta kepptu í skíðagöngu
Vel var mætt í Fljótagönguna á skíðum sem haldin var á föstudaginn langa. Alls mættu 88 keppendur á aldrinum 6 til 82 ára og komu víðsvegar að af landinu.
Keppt var í mörgum flokkum og vegalengdirnar voru frá 1 kílómetra til 20 km. en í þeim flokki kepptu báðir landsliðsmenn Íslands.
Mótið fór fram í ágætu veðri en færi þyngdist þegar leið á daginn enda hlýtt í veðri. Í mótslok var kaffisamsæti og verðlaunaafhending í félagsheimilinu Ketilási.
Allir þátttakendur fengu viðurkenningu og páskaegg fyrir þátttökuna.
Texti og myndir/ÖÞ