Aukasýningar á Ævintýrabókinni

Vegna góðrar aðsóknar hefur Leikfélag Sauðárkróks ákveðið að henda í tvær aukasýningar á Ævintýrabókinni eftir Pétur Eggerz. Búið er að sýna átta sýningar og verður sú 9. á morgun föstudag 19.október klukkan 18:00. Seinni aukasýningin verður sunnudaginn 21. október klukkan 15 og hefur hún verið auglýst sem allra síðasta sýning svo það er um að gera að panta miða í tíma.

Ævintýrabókin hefur fengið góða dóma enda sýning sem bæði fullorðnir og börn geta skemmt sér yfir og þá hefur leikur dverganna slegið í gegn.

Miðasala fer fram í síma 849 9434.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir