Austfirðingur ársins býr á Sauðárkróki
Steinar Gunnarsson, lögreglufulltrúi á Sauðárkróki, er Austfirðingur ársins að mati lesenda Austurgluggans/Austurfréttar. Steinar, sem er uppalinn Norðfirðingur, gaf lögreglunni á Austurlandi fíkniefnaleitarhundinn Byl í fyrra. „Ástæðan fyrir gjöfinni er að ég hef miklar taugar austur. Þar eru mínar heimaslóðir og ég er alinn upp í lögreglunni þar,“ segir Steinar í viðtali við Austurfrétt. Kosið var á milli ellefu einstaklinga og hópa og varð Steinar hlutskarpastur eftir jafna og tvísýna kosningu.
Í viðtalinu kemur fram að Bylur sé labrador á þriðja ári, undan tík í eigu Steinars og Winkel, hundi Fangelsismálastofnunar. Bylur rekur ættir sínar til vinnuhunda langt aftur í ættir og sýndi snemma hæfileika. Hann er alinn upp af Steinari og fjölskyldu en var einnig þjálfaður í fangelsinu á Litla-Hrauni. „Ég byrja fljótt að búa hvolpana undir það sem koma skal. Það kom fljótt í ljós að Bylur væri mjög efnilegur og ég hóf fulla þjálfun þegar hann var 4-5 mánaða.“
Bylur kom austur í nóvember og er í umsjón Snjólaugar Eyrúnar Guðmundsdóttur, lögregluþjóns á Egilsstöðum. „Mér skilst að hann sé þegar farinn að skila árangri og hann og Snjólaug nái vel saman. Það er ekki sjálfgefið, en skiptir miklu máli.“
Fullþjálfaðir fíkniefnaleitarhundar eru metnir á milljónir króna. „Þeir eru býsna dýrir en ég veit að þessum tíma er vel varið. Ég hef mikla trú á lögreglunni á Austurlandi og svona viðbót gerir hana enn betri,“ segir Steinar en viðtalið við hann má nálgast HÉR.