Bændafundur um riðu og varnir gegn henni
Landbúnaðarnefnd Skagafjarðar hefur boðað til almenns bændafundar um riðu og varnir gegn henni að Löngumýri næstkomandi þriðjudag, 24. mars, kl. 20:30.
Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir, Anna Karen Sigurðardóttir, sérgreinadýralæknir hjá Mast og Jón Kolbeinn Jónsson héraðsdýralæknir mæta á fundinn.