Bannað að selja plastburðarpoka
Í frétt á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins kemur fram að bannið er í samræmi við Evróputilskipun sem lýtur að því að draga úr notkun á plastpokum og var einnig meðal þeirra tillagna sem samráðsvettvangur um aðgerðir í plastmálefnum afhenti Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra, í loks árs 2018. Plastpokabannið er ein af fjölmörgum aðgerðum sem stjórnvöld ráðast í til þess að draga úr notkun á plasti, auka endurvinnslu á því og koma í veg fyrir plastmengun sjávar. Nánar má lesa um aðgerðirnar í aðgerðaáætlun í plastmálefnum; Úr viðjum plastsins, sem kom út síðastliðið haust.