Baráttukonan Elísabet Sóley Stefánsdóttir fallin frá

Elísabet Sóley Stefánsdóttir er látin, 37 ára að aldri, eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Hún lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 15. febrúar sl. Elísabet verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju næstkomandi laugardag kl. 14. Minningarathöfn verður haldin í Seljakirkju í Reykjavík föstudaginn 27. febrúar og hefst hún kl. 20.

Elísabet greindist með krabbamein í júlí á síðasta ári. Hún lét aldrei deigan síga í baráttu sinni og var allan tímann staðráðinn í að vinna bug á meininu. Hún deildi sjúkdómsreynslu sinni á Facebook og vefnum Innihald.is, sem hún ritstýrði, og sagði m.a. sjúkrasögu sína á einlægan og opinskáan hátt í viðtali í Feyki í október síðastliðnum.

Elísabet var Króksari í húð og hár, eins og hún lýsti því sjálf. Foreldrar hennar eru Stefán Jón Skarphéðinsson frá Gili og Ólína Rut Rögnvaldsdóttir. Hún lætur eftir sig þrjár dætur; Hörpu Katrínu, Sólveigu Birnu og Rebekku Hólm.

Elísabet var tómstunda- og félagsmálafræðingur að mennt og var að ljúka MA-námi í sálfræði í uppeldis- og menntunarfræðum, með áherslum á áhættuhegðun, forvarnir og lífssýn. Samhliða meistaranámi starfaði Elísabet sem ráðgjafi í eineltismálum og vann við afleysingarstörf á meðferðarheimilinu Stuðlum.

Feykir sendir aðstandendum Elísabetar innilegar samúðarkveðjur.

Minningartónleikar í Tjarnarbíói 26. mars

Nokkrir vinir og vandamenn Elísabetar höfðu ráðgert að halda styrktartónleika fyrir hana og dæturnar þann 26. mars næstkomandi. Ákveðið hefur verið að halda þeirri dagsetningu óbreyttri og halda minningartónleika í Tjarnarbíói í Reykjavík þetta kvöld. Öll innkoma á tónleikunum mun renna í sjóð til styrktar dætrum Elísabetar. Tónleikarnir hefjast kl. 20.

Fjöldinn allur af listamönnum kemur fram á tónleikunum og hafði Elísabet valið þá flesta sjálf.  Meðal tónlistarmanna má nefna Regínu Ósk, Siggu Beinteins, Gumma Jóns og Vestanáttina, Jógvan og Vigga, Pétur Ben og skagfirsku söngvarana Sólveigu Fjólmunds, Kristján Gísla og Ægi Ásbjörns.

Fleiri fréttir