Benda á fjölskylduvænt umhverfi fyrir flóttafólk
Á fundi byggðarráðs Svf. Skagafjarðar þann fyrsta þessa mánaðar var lagt fram bréf dagsett frá nokkrum íbúum að Hólum í Hjaltadal varðandi móttöku flóttamanna á Íslandi.
Fögnuðu þau ályktun byggðarráðs frá 3. september 2015 um móttöku flóttafólks og vildu meðal annars vekja athygli sveitarfélagins á friðsælu og fjölskylduvænu umhverfi Hóla í Hjaltadal til búsetu fyrir barnafjölskyldur. Byggðarráð þakkaði bréfriturum erindið og mun hafa það til hliðsjónar í vinnslu verkefnisins.