Bess ekki með Tindastól á næsta tímabili
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
16.06.2022
kl. 08.23
Bakvörður Tindastóls í Subway deild karla Javon Bess mun ekki verða með liðinu á næstu leiktíð.
Javon mun hafa samið við Goettingen í þýsku úrvalsdeildinni fyrir næstu leiktíð. Í 35 leikjum með Tindastóli á síðasta tímabili skilaði hann 19 stigum, 6 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum að meðaltali í hverjum leik.