Bílastæði við Árskóla leðjubundið í dag
Eigendur þeirra bíla sem eru staðsettir á bílastæði við Árskóla og íþróttahús á Sauðárkróki eru vinsamlega beðnir um að fjarlægja þá fyrir klukkan 16:00 í dag þar sem fara á í aðgerðir á stæðinu sem binda mun aurinn saman líkt og olíumöl.
Kennarar við Árskóla hafa ósjaldan í vetur vaðið ökkladjúpa leðju sem myndast gjarnan eftir hláku og regn á planinu en nú mun ástandið breytast. Í dag verður farið í það að blanda aurbindiefni við mölina sem fyrir er og mun planið verða nánast eins og bundið slitlag sé að ræða. Um nýja tækni er að ræða sem mikið er notuð í Færeyjum en þar hafa eyjaskeggjar löngum glímt við ámóta vandamál.
Ekki má leggja bílum á stæðinu fyrr en á mánudagsmorgun og er vegfarendur við íþróttahúsið beðnir um að virða það.
ATH ÞESSI "FRÉTT" ER APRÍLGABB!