BioPol, Iceprotein og FISK Seafood hljóta styrki frá AVS rannsóknasjóði
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur samþykkt tillögu úthlutunarnefndar AVS rannsóknasjóðs í sjávarútvegi um úthlutun þessa árs. Á meðal styrkþega eru sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf á Skagaströnd, líftæknifyrirtækið Iceprotein ehf og útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið FISK Seafood hf. Sauðárkróki.
Í fréttatilkynningu frá AVS rannsóknarsjóði segir að styrkirnir skiptist í fimm styrktarflokka. Þeir eru fiskeldi, markaðir, líftækni, veiðar og vinnsla og atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum.
Alls voru veittir 40 styrkir upp á tæplega 222 milljónir. Þeir skiptast á eftirfarandi hátt á milli styrktarflokkana:
- Fiskeldi 8 styrkir 62.136 þús. kr.
- Markaðir 5 styrkir 25.500 þús. kr.
- Líftækni 12 styrkir 75.850 þús. kr.
- Veiðar og vinnsla 11 styrkir 51.315 þús. kr.
- Atvinnuþróun og nýs. 4 styrkir 7.000 þús. kr.
Styrkirnir sem fóru til BioPols og Iceproteins voru á sviði líftækni en FISK Seafoods á sviði veiða og vinnslu, alls fengu fyrirtækin 17.330 þús.kr.
- BioPol ehf. Halldór Gunnar Ólafsson – Glycosaminoglycan pruduction from lumpfish – 4.550 þús.kr.
- Iceprotein ehf. Hólmfríður Sveinsdóttir – Athuganir á mettandi virkni þorskprótein hýdrólysata – 7.200 þús.kr.
- FISK Seafood hf Gunnlaugur Sighvatsson – Geymsluþol léttsaltaðra flaka í frosti – 5.580 þús.kr.
Skrá yfir styrkþega og styrki má nálgast á heimasíðu sjóðsins.
Loks segir í tilkynningunni að AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi sé samkeppnissjóður fjármagnaður af fjárlögum hvers árs og eru umsóknir metnar af faghópum sérfræðinga og mat þeirra liggur alfarið til grundvallar úthlutun.
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi var um næst síðustu áramót færður til Byggðastofnunar, Ártorgi 1 á Sauðárkróki. Formaður úthlutunarnefndar sjóðsins er Lárus Ægir Guðmundsson á Skagaströnd en aðrir í úthlutunarnefnd eru Árdís Ármann Steinþórsdóttir Reykjavík og Hólmfríður Sveinsdóttir Sauðárkróki. Starfsmaður sjóðsins er Pétur Bjarnason sjávarútvegsfræðingur.