Bjössi stundar ekki íþróttir, bara golf

Eymundur Ás og Bjössi í góðum gír á skrifstofu Feykis. Mynd: PF.
Eymundur Ás og Bjössi í góðum gír á skrifstofu Feykis. Mynd: PF.

Hann Eymundur Ás Þórarinsson var í starfskynningu hjá okkur á Feyki dagana 21. – 22. maí.  Fékk hann að kynnast fjölbreyttu starfi blaðamannsins og hvernig Feykir verður til. Fékk Eymundur m.a. það verkefni að skrifa ferðasögu til Danmerkur sem birtist í 20. tbl. Feykis og svo átti hann að taka stutt viðtal við Björn Sigurðsson, eða Bjössa, sem liðsinnir Eymundi dags daglega í skólanum sem og í starfskynningunni.

 Hvað heitir þú? -Björn Sigurðsson

Hvaðan ertu ættaður? -Frá Stóru-Ökrum Blönduhlíð, fríríki Skagafjarðar.

Við hvað vinnur þú? -Stuðningsfulltrúi í Árskóla.

Hefur þú farið til útlanda. Ef svo er, hvert? -Alloft, u.þ.b. 20 sinnum. Of langt mál að telja það upp.

Hvert er skemmtilegast að fara? Innan og utanlands? -Heim í Blönduhlíðina.

Hvert er skrítnast að fara. Innan og utanlands? -Heim aftur.

Ertu búinn að ákveða hvern þú ætlar að kjósa? -Nei, ég er með valkvíða.

Ertu áskrifandi að Feyki? -Nei, fjármálafulltrúinn á heimilinu sér um svoleiðis.

Stundar þú einhverja íþrótt? -Nei, bara golf.

Horfir þú mikið á íþróttir? Ef svo, hvaða? -Já, mjög mikið. Næstum allt, alveg langflest.

Hvernig bíl keyrir þú? -Runo.

Trúir þú á geimverur? -Nei.

Hefur þú séð draug/eitthvað óútskýrt eða dularfullt gerst fyrir þig? -Já, mér finnst stundum einhver fylgjast með mér.

Eitthvað að lokum? -Það fer vonandi að koma sumar.

Fleiri fréttir