Brotist inn á tveimur stöðum á Sauðárkróki

Í gegnum þessar dyr komust þjófarnir eftir að hafa spennt hurðina upp  á trésmiðjunni Borg. Mynd: PF
Í gegnum þessar dyr komust þjófarnir eftir að hafa spennt hurðina upp á trésmiðjunni Borg. Mynd: PF

 

Lögreglunni á Sauðárkróki bárust tvær tilkynningar sl. laugardag um innbrot í fyrirtæki á svæðinu. Virðist sem aðaltilgangur í báðum tilvikum hafi verið að valda tjóni því ekki lítur út fyrir að miklum verðmætum hafi verið stolið. Lögreglan telur á Facebooksíðu sinni rétt að minna íbúa svæðisins á að ganga tryggilega frá ökutækjum og læsa húsnæði sínu þegar það er yfirgefið og skilið eftir mannlaust.

 

Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar yfirlögregluþjóns var brotist inn á Trésmiðjuna Borg á Sauðárkróki og félagsheimilið Ljósheima, sem staðsett er rétt sunnan Sauðárkróks. Ekki hefur enn verið upplýst enn hverjir voru á ferðinni og óskar Lögreglan eftir vitnum sem hugsanlega hafa orðið varir grunsamlegra mannaferða á föstudagskvöld eða nótt. Viðkomandi eru hvattir til að hringja í síma 444 0700.

 

Sigurgísli Kolbeinsson framleiðslustjóri við einn rekkann sem duft slökkvitækis fór yfir.Á trésmiðjunni Borg hafði hurð verið spennt upp og farið inn, úðað úr slökkvitæki yfir rekka og gólf. Að sögn Sigurgísla Kolbeinssonar framleiðslustjóra virðist litlu hafi verið stolið og skemmdir ekki verulegar en eftir á að koma í ljós hvort þetta hafi afleiðingar vegna framleiðsluhluta sem nýbúið var að sprautumála.

 

Í Ljósheimum hafði stórum grjóthnullungi verið kastað inn um suðurhurð salarins og dreifðust glerbrot yfir dekkuð borð sem biðu erfidrykkju á laugardeginum. Þröstur Jónsson staðarhaldari Ljósheima segir aðkomuna hafa verið ömurlega. Glerbrot á víð og dreif um salinn, brotnir bollar sem höfðu fengið að fljúga á veggi, brotnar áfengisflöskur o.fl. Þjófarnir höfðu tekið eitthvað af áfengi með sér út í nóttina. Þröstur segir að brugðist hafi verið skjótt við og salurinn dekkaður að nýju svo erfidrykkjan mætti fara fram og um kvöldið var haldin árshátíð 4x4 klúbbsins. 

 

 

Fleiri fréttir