Bundið slitlag á Reykjastrandarveg
Vegagerðin hefur sótt um framkvæmdaleyfi til að styrkja og breikka 5,5 km kafla frá Þverárfjallsvegi að Fagranesi. Í framhaldinu er síðan fyrirhugað hugað að leggja bundið slitlag á veginn og þar með bæta umferðaröryggi. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar svf. Skagafjarðar 23. júní sl.
"Margrét Silja Þorkelsdóttir f.h. Vegagerðarinnar, sækir um framkvæmdaleyfi vegna áforma um styrkja og breikka Reykjastrandarveg á um 5,5km kafla frá Þverárfjallsvegi að Fagranesi, með það að markmiði að leggja á veginn bundið slitlag og bæta umferðaröryggi, skv. meðfylgjandi gögnum.
Áætlað er að efnistaka fari fram á þremur stöðum, í skeringum við Innstaland, í skeringum við Fagranes(Klukknaskriður) og úr Veðramótanámu.Vegagerðin óskar eftir afstöðu skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar Skagafjarðar, þ.e. hvort framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mati á umhverfisáhrifum nr. 106/2000,“ segir í erindi frá Vegagerðinni.
Nefndin telur að fyrirhugaðar lagfæringar séu löngu tímabærar, að þær munu hafa lítil sjónræn áhrif til lengri tíma litið og að ávinningurinn sé augljós, bundið slitlag á núverandi veg.
„Skipulags- og byggingarnefnd telur að fyrirhugaðar lagfæringar á Reykjastrandavegi séu löngu tímabærar, og telur umfang framkvæmdarinnar ekki þess eðlis að framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Þá telur nefndin að þar sem um er að ræða lagfæringar á vegi í núverandi vegstæði þá muni verða lítil sem engin sjónræn áhrif vegna framkvæmdarinnar til lengri tíma litið. Ávinningurinn sé augljós, þ.e. bundið slitlag á núverandi veg.“
Vegagerð er einnig minnt á að samkvæmt aðalskipulagi séu reiðvegir ætlaðir með öllum stofn- og tengivegum og þar á meðal Reykjastrandavegi. Nefndin óskar eftir því að tekið verði tillit til þess og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdunum.
„Skipulags- og byggingarnefnd minnir á að í vinnslutillögu að endurskoðun aðalskipulags Skagafjarðar 2020-2035, eru ætlaðir reiðvegir með öllum stofn- og tengivegum, þar með töldum Reykjastrandavegi. Nefndin óskar eftir að tekið verði tillit til framangreinds við framkvæmdina.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð 772/2012.“
/SMH