Burtfluttir blóta
Í frétt á heimasíðu Skagfirðingafélagsins kemur fram að þorrablót félagsins hafi tekist með eindæmum vel þetta árið. Skagfirðingar ársins sunnan heiða voru kjörin þau Skarphéðinn Ásbjörnsson og Ásta Knútsdóttir. Þorrahlaðborðið svignaði að sögn undan girnilegum kræsingum sem Freyja Ólafs reiddi fram.
Veislustjórar kvöldsins voru þau Palli Friðriks og Guðný Axels. Gústi Kára stjórnaði happdrætti og söngurinn ómaði um Sali hjá þeim Guðrúnu Odds og Valgerði Erlings. Slagarabandið sá svo um að haldi uppi dúndrandi danstónlist fram á nótt.
Nánari umfjöllun um viðburðinn ásamt myndum á sjá á heimasíðu félagsins og fésbókarsíðu þess.