Byggð verður bráðabirgðabrú yfir Vatnsdalsána
Vegagerðin ætlar að byggja bráðabirgðabrú yfir Vatnsdalsá við bæinn Grímstungu í Vatnsdal og er stefnt að því að hún verði tilbúin eftir um tvær vikur, að því er fram kemur á Mbl.is fyrr í vikunni. Verður hún um fimmtíu metrum fyrir neðan gamla brúarstæðið.
Nýja brúin verður svipuð og sú sem sett var upp til bráðabirgða í Múlakvísl fyrir fáeinum árum. Verið er að ljúka við að fjarlægja brúna sem hrundi nýlega.
Í samtali við Mbl.is sagðist Aron Bjarnason, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni ekki vita hvenær varanleg brú verði byggð yfir ána. Til þess þurfi Vegagerðin að fá fjármagn til verkefnisins. „Þetta er til bráðabirgða, en tilhneigingin með bráðabirgðabrýr, sérstaklega á umferðarminni vegum, er sú að þær vilja standa lengur en ætlunin var,“ segir Aron í samtali við Mbl.is.