Covid-styrkur til stuðnings menningarstarfsemi í Skagafirði

Frá sýningu NFNV á Footloose. Mynd: NFNV.
Frá sýningu NFNV á Footloose. Mynd: NFNV.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf. Skagafjarðar auglýsir eftir umsóknum um tímabundinn styrk til stuðnings menningarstarfsemi í Sveitarfélaginu Skagafirði. Styrkurinn er liður í viðspyrnu sveitarfélagsins vegna COVID-19 til að styðja við heimili, fyrirtæki og félagasamtök í Skagafirði.

Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að styrkþegar verði þeir sem orðið hafa fyrir tekjutapi vegna menningarviðburða sem ákveðið hefur verið að fella niður eða breyta verulega vegna samkomubanns af völdum COVID-19 og hægt er að sýna fram á að hafi veruleg áhrif á rekstur og starf viðkomandi aðila.

Tímabil menningarviðburða sem styrkhæfir eru í þessari sértæku úthlutun er frá 1. mars 2020 til loka árs 2020. Þeir viðburðir sem ákveðið var innan þessa tímabils að fella niður eða breyta verulega umfangi þeirra falla undir þessa úthlutun. Umsóknarfrestur er til og með 16.mars nk. en nánari upplýsingar er hægt að fá á heimasíðu Svf. Skagafjarðar.

Fleiri fréttir