Dagskrá Sæluviku og myndir frá setningunni

Tónlistarfólkið góða sem spilaði við setninguna. MYNDIR: ÓAB
Tónlistarfólkið góða sem spilaði við setninguna. MYNDIR: ÓAB

Sæluvikan hefur farið vel af stað og áfram heldur veislan í dag. Að vísu hefur áður auglýstum tónleikum Kvennakórsins Sóldísar sem fara áttu fram í kvöld á Hofsósi verið frestað og verða haldnir 21. apríl.

Í dag verður opið í Safnahúsi Skagfirðinga þar sem hægt að skoða sýninguna í tilefni af 100 ára afmæli Indriða G. Þorsteinssonar og þá er opið í Vatnaveröld, smábátasafninu á Húsabakka frá kl. 13. Hlaupahópurinn 550 rammvilltar og Fætur toga verða með kynningu og hlaupaæfingu kl. 16:30 í FNV.

Feykir hefur áður sagt frá setningu Sæluvikunnar sl. sunnudag. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá setningarathöfninni.

Fleiri fréttir