Danska ríkissjónvarpið heimsækir Sauðárkrók

Þátturinn Tv Avisen á sjónvarpsstöðinni DR1 ræddi við viðskiptavini Skagfirðingabúðar. Mynd/Skjáskot af vef DR1.
Þátturinn Tv Avisen á sjónvarpsstöðinni DR1 ræddi við viðskiptavini Skagfirðingabúðar. Mynd/Skjáskot af vef DR1.

Frétta- og tökumaður frá danska ríkissjónvarpinu DR1 ræddi við nokkra Skagfirðinga síðastliðinn föstudag og var það hluti af umfjöllun ólguna sem ríkt hefur á landinu undanfarna daga. Þátturinn Tv Avisen sýndi frá mótmælunum á Austurvelli og þá var farið norður í Skagafjörð, sem þekktur er fyrir mikið fylgi við Framsóknarflokkinn.

Á Sauðárkróki ræðir fréttakonan Lisbeth Sung við Skagfirðinga sem hún hittir á förnum vegi og fer jafnframt í Skagfirðingabúð. Fréttainnslagið þar sem Lisbeth ræðir við Sigurð Skagfjörð, Guðbjörgu Árnadóttur, Hallgrím Blöndal, Ibrahim Antar og Viggó Jónsson hefst 2:57.

Hér er hlekkur á myndskeiðið á vef DR1. 

Fleiri fréttir