Deiliskipulag Depla í Austur-Fljótum samþykkt

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti þann 25. febrúar síðastliðinn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Depla í Austur-Fljótum. Hún fól í sér gerð deiliskipulags þar sem fyrirhuguð er uppbygging jarðarinnar Depla með áherslu á ferðaþjónustu, veiði og gistiskála.

Á vef Svf. Skagafjarðar segir að skipulagssvæðið taki til hluta jarðarinnar og er um 9,3 hektarar að stærð. Heildar byggingarmagn verður um 3000 m2.

Á vefnum segir að athugasemd hafi borist þar sem bent var á að hljóðmön við bílastæði myndi draga úr áreiti sem óhjákvæmilega yrði af bílum dvalargesta.

„Skipulags- og byggingarnefnd taldi rétt að taka athugasemdina til greina og setja netta jarðvegsmön við trjábeltið á milli aðkomuvegar og bílastæðis. Skipulags- og byggingarnefnd lagði því til við sveitarstjórn að þessi tillaga að deiliskipulagi yrði samþykkt með ofangreindum breytingum,“ segir á síðunni.

Deiliskipulagið var samþykkt samhljóða á sveitarstjórnarfundi 13. maí síðastliðinn með ofangreindum breytingum.

Fleiri fréttir