Eimskip leggur Vinaliðaverkefninu lið

Eimskip hefur ákveðið að styrkja útbreiðslu Vinaliðaverkefnisins en Árskóli á Sauðárkróki gerði á dögunum samning við norska eigendur verkefnisins um útbreiðslu þess á Íslandi. Samningurinn var handsalaður í síðustu viku. Greint er frá þessu á vef Árskóla.

Verkefnið er í senn bæði forvarnarverkefni gegn einelti en stuðlar einnig að aukinni hreyfingu nemenda í frímínútum.

„Þessi styrkur er ómetanlegur fyrir forvarnaverkefni eins og þetta, enda eru forvarnaverkefni ekki rekin með hagnaðarsjónarmiðum. Það kostar mikið að ferðast um landið, kynna verkefnið og innleiða það hjá skólum. Þegar skólar verða þátttakendur eru þeir þjónustaðir vel með mörgum heimsóknum þar sem við Gestur þjálfum upp starfsfólk og nemendur til að takast á við verkefnið,“ segir Guðjón.

Guðjón segir verkefnið nú unnið í 20 skólum hér á landi með mjög góðri reynslu.

„Þeir skólar sem taka verkefnið inn og sinna því af metnaði finna strax aukna virkni nemenda í jákvæðum leikjum í frímínútum, minni togstreitu milli nemenda og bættan skólaanda. Það hlýtur að vera eftirsóknarvert að ná þessu fram í starfi allra skóla og jafnframt að minnka verulega líkur á því að einelti nái að grassera á skólalóðinni í frímínútum.“

Styrkurinn kemur sér afar vel fyrir verkefnið, að sögn Guðjóns, honum verði ráðstafað beint til fimm næstu skóla sem skrá sig í verkefnið sem afsláttur af fyrsta árgjaldi.

Fleiri fréttir